
Brautarholt 22-24
105 Reykjavík
Sími: 511 3777
Fax: 511 3776
Netfang: bjork@keahotels.is
Hótel Björk er úrvals þriggja stjörnu hótel í nokkurra mínútna göngufæri frá Laugaveginum.
Á hótelinu eru 55 notaleg og smekklega innréttuð herbergi útbúin öllum helstu þægindum. Veitingastaðurinn, Potturinn og pannan, sem er landsmönnum gamalkunnur fyrir góðan viðgjörning, sér um allar veitingar fyrir hótelið og er innangengt á hann. Hótel Björk er úrvalskostur fyrir fjölskyldur, ferðamenn og fólk í viðskiptaerindum.
Hvort sem þið komið sem hluti af hóp, til að fagna tímamótum í lífinu eða viljið einungis slappa af í Reykjavík hikið ekki við að spyrja starfsfólk okkar um hina ýmsu möguleika sem hótelið hefur uppá að bjóða. Verið velkomin á Hótel Björk.