Hótel Björk er í aðeins í nokkurra mínútna göngufæri frá Laugaveginum og hjarta gamla miðbæjarins. Hlemmur er í næsta nágrenni og er hann einn þeirra áfangstaða sem flestir strætisvagnar ganga hjá á hringferð sinni um borgina. Einnig er Kringlan skammt undan fyrir þá sem vilja grípa tækifærið og versla í höfuðstaðnum.
Á horninu á móti Hótel Björk er Baðhús Lindu Pétursdóttur en Baðhúsið er alhliða heilsulind fyrir konur. Kjarvalsstaðir eru í göngufæri við hótelið auk þess sem Laugardalurinn er ekki langt frá með Laugardalslauginni, Grasagarðinum, tennisvöllum, Húsdýragarðinum, Skautahöllinni og tennisvöllum. Broadway er í næsta nágrenni með sín frægu show en geysivinsælt er að taka þau með í borgarferð til Reykjavíkur. Að framansögðu má sjá að hótelið er afar vel staðsett og því hentugt hvort sem gestir okkar eru að leita eftir menningu, skemmtun eða afslöppun.
GPS hnit: 64° 8,486'N, 21° 54,245'W (ISN93: 358.663, 407.533)
Sjá stærra kort