Veitingar

Innangengt er af Hótel Björk á hinn sívinsæla veitingastað "Potturinn og Pannan" en hann er sambyggður hótelinu. Potturinn og Pannan sér um allar veitingar fyrir hótelið og fá gestir hótelsins þar framreiddan morgunverð af hlaðborði með úrvali nýbakaðra brauða. Boðið er upp á fjölbreyttan matseðil allan daginn. Hádegisverðarhlaðborðið er geysivinsælt en á því er boðið upp á salatborð, súpur, heita rétti, sérstaka heilsurétti og margt fleira.