Á Hótel Gíg er sérlega glæsilegur veitingasalur, með stórkostlegu útsýni yfir vatnið, sem tekur allt að 200 manns. Af fjölbreyttum matseðlinum ættu allir að finna sér eitthvað við hæfi, hvort sem er kaffi og kökur eða hádegis eða kvöldverður. Á hótelbarnum er notalegt að tylla sér niður og fara yfir atburði dagsins í fallegu umhverfi.