Staðsetning

Hótel Harpa er staðsett í höfustað Norðurlands, Akureyri. Hótelið er í hjarta bæjarins við rætur Akureyrarkirkju og við enda göngugötunnar. Stutt er í alla þjónustu, banka, verslanir, veitingahús og skemmtistaði. Þá er ekki síður stutt í Sundlaug Akureyrar og Listagilið. Hótel Harpa er því sérlega hentugt fyrir hvort sem er gestinn í viðskiptaerindum, ráðstefnugestinn eða hinn almenna ferðamann.