Flýtilyklar
Viltu bæta skíðastílinn með Hótel Kea?
Viltu bæta skíðastílinn með Hótel Kea?
Leyfðu þér að hlakka til að skíða eins og fagmaður á Akureyri.
69.990 kr. tvær nætur fyrir tvo
34.995 kr. á mann m.v. tvo í herbergi
Á námskeiðinu pússum við stílinn og lærum að skíða við fjölbreyttar aðstæður. Tekið verður mið af þörfum hvers og eins. Ef aðstæður leyfa verður skíðað í púðursnjó fyrir þá sem vilja. Skíðafélag Akureyrar sér um kennsluna en félagið sérhæfir sig í kennslu og skíðaiðkun. Upplagt fyrir vinahópa. Námskeiðið takmarkast við 20 manns. Námskeiðið eru frá kl. 11:00-13:00 laugardag og sunnudag.
- Tvær nætur fyrir tvo með morgunverði
- Nesti í fjallið frá Lemon annan daginn
- Tvö skíðanámskeið með Skíðafélagi Akureyrar
- Fjögurra rétta smáréttakvöldverður á Múlabergi annan daginn
- Aðgangur í Sundlaug Akureyrar
Dagsetningar
29. - 31. janúar | ||
5. - 7. febrúar | ||
12. - 14. febrúar | ||
26. - 28. febrúar | ||
19. - 21. mars | ||
26. - 28. mars |
Skilmálar
- Bókun fæst ekki endurgreidd en þú getur fært bókun 7 dögum fyrir komu svo lengi sem laust er á umbeðnum dögum.
- Við endurgreiðum námskeiðið ef það fellur niður vegna veðurs eða lágmarksþátttaka næst ekki.
- Viðskiptavinur mætir með eigin búnað (skíði, stafi, skó og fatnað).
- Aðstaða til að geyma skíðin er hjá okkur.
- Akstur í Hlíðarfjall er ekki innifalinn í tilboði.
- Falli námskeiðið niður vegna sóttvarnaraðgerða verður hún endurgreidd.
- Lyftukort í Hlíðarfjall er ekki innifalið og þarf því að kaupa aukalega.
- Greiðslu er hægt að nýta sem inneign fyrir önnur tilboð eða gistingu hjá Keahótelum, ef afbókað er með 7 daga fyrirvara.
Þeir sem kaupa námskeiðið fá að auki
- 20% afslátt af hádegisverði á Múlabergi.
- 20% afslátt af öllum drykkjum á Múlabergi.
- 15% afslátt af bílaleigubíl frá Höldur Bílaleiga.
- 25% afslátt á Hamborgarafabrikkunni og Lemon nestispakki 990 kr. á mann.
- 25% afsláttur á Blackbox Pizzería
- 20% afslátt í Bjórböðin.
- Síðbúna útskráningu á sunnudegi.
- 15% afslátt af vörum og þjónustu hjá M-Sport á Akureyri. M-Sport er alhliða útivistarbúð sem sér einnig um þjónustu á skíðum svo sem viðgerðum og að vaxbera
Fyrir nánari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við Hótel Kea á Akureyri í síma 460 2080 eða á netfangið kea@keahotels.is
Leyfðu þér að hlakka til skemmtilegrar ferðar og upplifunar.