Flýtilyklar
Tveggja manna herbergi
Lýsing herbergis
Tveggja manna herbergin á Skuggi Hótel eru hönnuð með þægindi og þokka að leiðarljósi. Innblástur fyrir hönnunina var sóttur í ljósmyndir Ragnars Axelssonar af íslenskri náttúru sem skapa, í bland við borgarsjarmann, grófa en notalega stemningu.
Inni á hverju herbergi má finna tilvitnun yfir höfuðgafli úr bókinni Fjallaland, en hana prýða myndir eftir Ragnar. Ensk útgáfa bókarinnar er á öllum herbergjum og geta gestir gluggað í hana á meðan dvöl stendur. Hægt er að velja milli þess að fá hjónarúm eða tvö einstaklingsrúm.MEÐALSTÆRÐ: 18m2
RÚM: Twin 2 x 90cm / King 180cm
Búnaður í herbergi
- Frí internettenging
- Sjónvarp
- Sími
- Kaffi- og tesett
- Baðherbergi
- Sturta
- Hárblásari
- Baðvörur
- Skrifborð
- Stóll
- Fatahengi
- Parketlögð gólf