Hótelin okkar

Keahotels er ein af stærstu hótel keðjum Íslands með hótel í Reykjavík, Akureyri, Vík, Grímsnesi og Siglufirði.

Map of iceland

Koma

Select date

Brottför

Select date

Gestir og Valkostir

2 gestir

Gisting fyrir hópa

Hótel Grímsborgir bjóða upp á þrjú ólík hús sem henta einstaklega vel fyrir hópa. Öll húsin bjóða upp á einkaherbergi með sameiginlegum rýmum og heitum pottum sem gera hópnum kleift að njóta samveru í þægilegu og afslöppuðu umhverfi. Tilvalið fyrir vinahópa, fyrirtækjafundi, brúðkaupsgesti og fjölskyldur.

Deluxe Húsin

Hótel Grímsborgir bjóða upp á fimm Deluxe-hús sem hægt er að bóka í heild eða sem einstök herbergi. Húsin henta einstaklega vel fyrir vinahópa, vinnuhópa eða fjölskyldur sem vilja dvelja saman í næði. Hvert hús rúmar allt að 10 gesti í fimm rúmgóðum hótelherbergjum og er því afar vel til þess fallið fyrir hópdvöl.

Hvert herbergi er um 30 fermetrar að stærð og er með hljóðeinangraða veggi, sérbaðherbergi með walk-in sturtu, te- og kaffiaðstöðu, flatskjá, og litla einkaverönd. Sloppur og inniskór fylgja einnig hverju herbergi og henta vel fyrir þá sem vilja nota heita pottinn.

Deluxe-húsin bjóða upp á rúmgott sameiginlegt alrými með stórum borðstofuborði, ísskáp og notalegri setustofu með stórum sófa og sjónvarpi. Á veröndinni hafa gestir aðgang að heita potti með fallegu útsýni yfir sveitina.

Gallery Húsið

Gallerý húsið samanstendur af 10 rúmgóðum, 40 fermetra svítum. Hver svíta er með sérbaðherbergi með bæði baðkari og walk-in sturtu., auk aðgangs að einkaverönd með heitum poti. Gallerý-svíturnar henta einstaklega vel fyrir gesti sem óska eftir meira rými og auknum þægindum, sem og fyrir smærri hópa sem vilja sameina gistingu og fundi eða einkaviðburði.

Í Gallerý-húsinu er einnig að finna Gallery-salinn, sérútbúið og sjálfstætt viðburðarými sem býður upp á einkaaðstöðu fjarri meginbyggingu hótelsins. Salurinn er rúmgóður, bjartur og með fallegu útsýni yfir nærliggjandi landslag. Rýmið hentar vel fyrir allt að 60 manns í sæti og er vel búið til funda- og ráðstefnuhalds.

Superior Húsin

Superior húsin eru þrjú talsins og hvert þeirra inniheldur átta herbergi. Hvert herbergi er 25 fermetrar að stærð og er með sérbaðherbergi með baðkari og sturtu, auk einkaverandar.

Í hverju húsi er sameiginleg setustofa sem hentar einstaklega vel fyrir hópa sem vilja koma saman og njóta samveru. Auk þess fylgja tveir einkapottar hverju húsi til afnota fyrir gesti.

Þetta er tilvalin lausn fyrir meðalstóra hópa sem vilja dvelja saman.