Hótelin okkar

Keahotels er ein af stærstu hótel keðjum Íslands með hótel í Reykjavík, Akureyri, Vík, Grímsnesi og Siglufirði.

Map of iceland

Koma

Select date

Brottför

Select date

Gestir og Valkostir

2 gestir

Golfsumar á Hótel Grímsborgum

Hvort sem þú ætlar í nokkra golfhringi eða langa golfhelgi er Hótel Grímsborgir fullkominn upphafsstaður. Hótelið er staðsett í hjarta Gullna hringsins þar sem stutt er í fjölmarga glæsilega golfvelli, einstaka náttúru og fyrsta flokks aðstöðu til að slaka á eftir daginn.

Notaðu afsláttarkóðann "GOLF20" og fáðu 20% afslátt af gistingu á Hótel Grímsborgum.

Eftir golfdaginn bíður þín notalegt herbergi, ljúffengur kvöldverður á veitingastað hótelsins og afslöppun í heitum potti undir opnum himni.

Tilboðið gildir eingöngu af gistingu. Golf er ekki innifalið og er bókað beint hjá viðkomandi golfklúbbi.

Til að virkja tilboðið skaltu smella á dagatalið efst á síðunni. Hægra megin við dagatalið finnur þú reit þar sem þú slærð inn afsláttarkóðann "GOLF20".

Golfvellir í nágrenninu

Kiðjaberg Golfklúbbur

Akstur: um 20 mínútur

Einn glæsilegasti 18 holu golfvöllur landsins þar sem leikið er um fallegt landslag með útsýni yfir Hvítá. Völlurinn býður upp á fjölbreyttar brautir, hæðarmun og skemmtilegar áskoranir fyrir kylfinga á öllum getustigum.

Golfklúbburinn Hraunborgir

Akstur: um 15 mínútur

Rólegur og fallegur 9 holu völlur umkringdur hrauni og birkikjarri. Tilvalinn fyrir afslappaðan hring eða upphitun áður en haldið er á stærri velli.

Golfklúbbur Selfoss – Svarfhóll

Akstur: um 20 mínútur

Skemmtilegur 9 holu golfvöllur þar sem vatnshindranir og fjölbreytt hönnun gera hvern hring áhugaverðan. Hentar jafnt byrjendum sem reyndum kylfingum.

Golfklúbbur Hveragerðis – Gufudalur

Akstur: um 30 mínútur

Einstakur golfvöllur í fallegu jarðhitasvæði þar sem náttúran setur sterkan svip á upplifunina. Víðar brautir og fallegt umhverfi gera völlinn að vinsælum áfangastað.

Öndverðarnes Golfvöllur

Akstur: um 15 mínútur

Vinsæll 18 holu golfvöllur sem er þekktur fyrir frábæra umhirðu, fjölbreyttar brautir og fallegt útsýni yfir sveitina. Fullkominn kostur fyrir þá sem vilja upplifa einn af vinsælli golfvöllum Suðurlands.

Pictures of 5 golfcourses