Hótelin okkar

Keahotels er ein af stærstu hótel keðjum Íslands með hótel í Reykjavík, Akureyri, Vík, Grímsnesi og Siglufirði.

Map of iceland

Koma

Select date

Brottför

Select date

Gestir og Valkostir

2 gestir

Jólahlaðborð fyrir hópinn

Njótið aðdraganda jólanna með dýrindis jólahlaðborði & lifandi tónum í hátíðlegu og hlýlegu umhverfi á hótel Grímsborgum með vinahópnum, fjölskyldunni eða vinnunni.

Hreimur mun koma fram allar helgar og halda uppi stemningunni á meðan á matnum stendur.

Hér getur þú séð matseðilinn.

Við bjóðum uppá frábæran valkost fyrir 10 manns í deluxe húsunum okkar. Húsin er 200fm og innihalda 5 hótel herbergi og stórt sameiginlegt svæði með borðstofu, eldhúskrók, setustofu og einka heitur pottur með frábæru útsýni.

Verð á mann er 34.950 miðað við tvo í hverju herbergi. Gildir aðeins fyrir 10 manna hópa.

Innifalið er:

  • Einkahús
  • 5 tveggja manna deluxe herbergi
  • Aðgangur að heitum potti
  • Jólahlaðborð fyrir 10 manns
  • Morgunverður fyrir 10 manns

Ert þú með stærri hóp? Endilega sendu okkur póst á sales@keahotels.is og við gefum þér verð fyrir hópinn.

Herbergin

Herbergin eru öll 30fm með hljóðeinangruðum veggjum, sér baðherbergi með walk in sturtu, einka verönd þar sem hægt er að setjast niður, te- og kaffivél og sjónvarp. Í öllum herbergjum eru baðsloppar og inniskór til að hafa það notalegt hjá pottinum.

Jólahlaðborð verða:

Hægt er að velja dagsetningu hér fyrir neðan:

Laugardaginn 22. nóv / UPPSELT

Föstudaginn 28. nóv

Laugardaginn 29.nóv

Föstudaginn 5. des

Laugardaginn 6. des / UPPSELT

Laugardaginn 13. des / UPPSELT

Viljir þú lengja dvölina bjóðum við upp á aukanótt á sérverði með keyptu tilboði. Vinsamlegast hafðu samband eftir að bókun er gerð, á sales@keahotels.is eða í síma 460-2000.

Ert þú með stærri hóp? Endilega sendu okkur póst á sales@keahotels.is og við gefum þér tilboð í hópinn.

Við hlökkum til að taka á móti þér í jólaskapi.

Skilmálar

  • Hægt er að færa bókun 7 dögum fyrir komu
  • Greiðsla tekin 2 dögum fyrir komu
  • Bókun endurgreiðist ekki 7 dögum fyrir komu.

    * Aðrir skilmálar taka gildi vegna hópabókana