Jólahlaðborð á Hótel Grímsborgum
Komdu í sannkallaða jólastemningu á Hótel Grímsborgum og njóttu hátíðarinnar með glæsilegu jólahlaðborði í notalegu umhverfi.
Hreimur sér um lifandi tónlist meðan á kvöldverði stendur og þegar líður á kvöldið tekur DJ Geir Flóvent við og heldur uppi fjörinu.
Helgina 27. og 28. nóvember verður Matti Matt með okkur og sér um tónlist og fjör yfir kvöldið.
Tilboðið innifelur eina nótt fyrir tvo, glæsilegt jólahlaðborð, morgunverð daginn eftir og aðgang að sameiginlegum heitum potti.
Fullkomin leið til að slaka á og njóta jólanna.
Verð frá 66.900 fyrir tvo í standard herbergi (á mann 33.450).
Verð frá 44.400 fyrir einn í standard herbergi.

Jólahlaðborð verða:
Hægt er að velja dagsetningu hér fyrir neðan:
Laugardaginn 14. nóvember Hreimur & DJ Geir Flóvent
Laugardaginn 21. nóvember Hreimur & DJ Geir Flóvent
Föstudaginn 27. nóvember Matti Matt & DJ Geir Flóvent
Laugardaginn 28. nóvember Matti Matt & DJ Geir Flóvent
Föstudaginn 4. desember Hreimur & DJ Geir Flóvent
Laugardaginn 5. desember Hreimur & DJ Geir Flóvent
Laugardaginn 12. desember Hreimur & DJ Geir Flóvent
Ef þú ert með stóran hóp og vilt koma á annarri dagsetningu en auglýst er hér fyrir ofan getur þú haft samband við okkur í gegnum tölvupóst sales@keahotels.is.
Viljir þú lengja dvölina bjóðum við upp á aukanótt á sérverði með keyptu tilboði. Vinsamlegast hafðu samband eftir að bókun er gerð, á sales@keahotels.is eða í síma 460-2000.
Við hlökkum til að taka á móti þér í jólaskapi.

Jólahlaðborð fyrir hópinn
Við bjóðum uppá frábæran valkost fyrir 10 manns í deluxe húsunum okkar. Húsin er 200fm og innihalda 5 hótel herbergi og stórt sameiginlegt svæði með borðstofu, eldhúskrók, setustofu og einka heitan pott með frábæru útsýni.
Innifalið er:
- Einkahús
- 5 tveggja manna deluxe herbergi
- Aðgangur að heitum potti
- Jólahlaðborð fyrir 10 manns
- Morgunverður fyrir 10 manns
Endilega sendu okkur póst á sales@keahotels.is og við gefum þér verð fyrir hópinn.

Skilmálar
- Hægt er að færa bókun 2 dögum fyrir komu.
- Greiðsla tekin 2 dögum fyrir komu.
- Bókun endurgreiðist ekki 2 dögum fyrir komu.
* Aðrir skilmálar taka gildi vegna hópabókana
