Prjónahelgi Hótel Grímsborga
Með Sjöfn hjá Stroff og Sölku Sól
Helgina 30. janúar - 1. febrúar verður haldin þriðja prjónahelgin á Hótel Grímsborgum! Sjöfn hjá Stroff og Salka Sól sjá um viðburðinn og stemminguna eins og áður og verða innan handar. Komdu með verkefnið þitt og prjónum saman í góðum félagsskap umvafin fallegu umhverfi.
Allir sem koma á prjónahelgina fá glaðning. Einnig eiga allir séns á því að vinna flotta vinninga í happdrætti sem Sjöfn og Salka munu draga reglulega úr yfir helgina.
FORSÖLUVERÐ
Verð á mann miðað við tvo í herbergi frá 51.950
Verð á mann miðað við einn í herbergi frá 68.900
Smelltu hér til þess að kaupa.
Gistináttaskattur er ekki innifalinn í verðinu og er rukkaður við komu.

Hvað er innifalið?
Innifalið í pakkanum er:
- 2 nætur ásamt morgunverði
- Kvöldverður bæði kvöldin
- Hádegisverður
- Síðdegiskaffi
- Glaðningur
- Happdrætti með skemmtilegum vinningum

Skilmálar
- Full greiðsla er tekin af korti bakvið bókun 7 dögum fyrir komu.
- Bókun fæst ekki endurgreidd eftir greiðslu.
- Ef afbókun berst minna en 7 dögum fyrir komu er hægt að nýta upphæð fyrir gistingu á Hótel Grímsborgum.
- Ef ekki næst lágmarksfjöldi getur viðburðurinn fallið niður og þátttakendur fá fulla endurgreiðslu.
Ef skipta á greiðslunni á milli gesta, vinsamlegast hafið samband við hótelið eftir bókun.
