Hótelin okkar

Keahotels er ein af stærstu hótel keðjum Íslands með hótel í Reykjavík, Akureyri, Vík, Grímsnesi og Siglufirði.

Map of iceland

Koma

Select date

Brottför

Select date

Gestir og Valkostir

2 gestir

Prjónahelgi Hótel Grímsborga

Með Sunnu Maríu og Anna Si Art

Helgina 19. - 21. febrúar verður haldin fimmta prjónahelgin á Hótel Grímsborgum!

Sunna María prjónahönnuður og Anna Sigga handverkskona munu sjá um viðburðinn og verða til staðar yfir helgina. Hvort sem þú vilt sökkva þér niður í verkefnið þitt eða spjalla við aðra prjónaáhugamenn er þetta kjörið tækifæri til að gefa þér tíma fyrir það sem þér finnst skemmtilegt.

Allir þátttakendur fá gjafapoka með alls kyns glaðningum. Að auki verður dregið í happdrætti yfir helgina þar sem allir eiga möguleika á að vinna flotta vinninga.

Verð á mann miðað við tvo í herbergi frá 56.450 kr.

Verð á mann miðað við einn í herbergi frá 82.000 kr.

Smelltu hér til þess að kaupa.

Gistináttaskattur er ekki innifalinn í verðinu og er rukkaður við komu.

Hvað er innifalið?

Innifalið í pakkanum er:

  • 2 nætur ásamt morgunverði
  • Kvöldverður bæði kvöldin
  • Hádegisverður
  • Síðdegiskaffi
  • Glaðningur
  • Happdrætti með skemmtilegum vinningum

Skilmálar

  • Full greiðsla er tekin af korti bakvið bókun 7 dögum fyrir komu.
  • Bókun fæst ekki endurgreidd eftir greiðslu.
  • Ef afbókun berst minna en 7 dögum fyrir komu er hægt að nýta upphæð fyrir gistingu á Hótel Grímsborgum.
  • Ef ekki næst lágmarksfjöldi getur viðburðurinn fallið niður og þátttakendur fá fulla endurgreiðslu.

Ef skipta á greiðslunni á milli gesta, vinsamlegast hafið samband við hótelið eftir bókun.