Hótelin okkar

Keahotels er ein af stærstu hótel keðjum Íslands með hótel í Reykjavík, Akureyri, Vík, Grímsnesi og Siglufirði.

Map of iceland

Koma

Select date

Brottför

Select date

Gestir og Valkostir

2 gestir
104 Herbergi
Morgunverður innifalinn
Veitingastaður og bar
Ráðstefnu– & fundaaðstaða
Ókeypis bílastæði
Þráðlaust net

Eitt af kennileitum höfuðstaðar Norðurlands, Hótel Kea, í hjarta Akureyrar. Vel staðsett og samtvinnað sögu síðustu áratuga skapar það fullkomið heimili fyrir ferðalanga á Norðurlandi.

Hugmyndafræðin

Akureyri

Höfuðstaður Norðurlands, Akureyri og Hótel Kea hafa ruglað saman reitum og samtvinnað sögur sínar um árabil í hjarta hins sjarmerandi miðbæjar. Þó bærinn hafi breitt úr sér síðan hótelið hóf starfsemi er allt sem hugurinn girnist innan seilingar. Akureyri býður upp á menningu, söfn, veitingastaði, útivist og skíði. Allt sem þú þarft.

Norðurland

Akureyri er fullkomin fyrir grunnbúðir þegar Norðurland er sótt heim. Helstu náttúruperlur landsins mynda perlufestar í allar áttir sem eru fullkomnar fyrir dagsferðir. Hálendið, ströndin, fossar, fljót og grösugar nágrannasveitir. Spennandi baðstaðir, flúðasiglingar, hvalaskoðun – vetrarævintýri. Maður hefur ekki skoðað Ísland hafi maður ekki heimsótt Norðurland.

Múlaberg

Múlaberg leitast eftir fremsta megni að bjóða upp á fersk hráefni frá Norðurlandi og nærumhverfinu, alla daga vikunnar frá hádegi og fram á kvöld!  Okkar magnaða fagfólk sér um að útbúa fyrsta flokks drykki og mat fyrir þig og þína.