Hótelin okkar

Keahotels er ein af stærstu hótel keðjum Íslands með hótel í Reykjavík, Akureyri, Vík, Grímsnesi og Siglufirði.

Map of iceland

Koma

Select date

Brottför

Select date

Gestir og Valkostir

2 gestir

Golf og gisting á Sigló Hótel

Það er sannkallað golfsumar fram undan og því tilvalið að skella sér í golf á Siglufirði.

Golfvöllurinn á Siglufirði er staðsettur í einstöku landslagi Norðurlands og býður upp á skemmtilega upplifun fyrir bæði vana kylfinga og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á vellinum. Níu holu völlurinn sameinar fjölbreyttar áskoranir, fallegt umhverfi og notalega stemningu.

Til að gera golfferðina enn betri bjóðum við sérstakt golf- og gistitilboð, þar sem gisting og golf eru innifalin á frábæru verði. Njóttu dagsins á golfvellinum og slakaðu svo á í notalegri gistingu hjá okkur á Sigló Hótel.

Hægt er að bóka tilboðið með því að smella hér og velja rétta dagsetningu.

Innifalið í tilboði

  • Gisting fyrir tvo í eina eða tvær nætur
  • Morgunverður
  • 18 holur á golfvelli Siglufjarðar hvern dag

Flatargjaldið er innifalið í bókun en kylfingar geta bókað rástíma með því að hringja í númerið 462 2974 eða senda okkur tölvupóst á netfangið skrifstofa@gagolf.is.

Skilmálar

Hægt er að afbóka með minnst 48 klst. fyrirvara án endurgjalds. Berist afbókun hinsvegar innan 48 klst. fyrir komu eða gestur mætir ekki er tekið fullt gjald fyrir allar nætur í gistingu.