Hótelin okkar

Keahotels er ein af stærstu hótel keðjum Íslands með hótel í Reykjavík, Akureyri, Vík, Grímsnesi og Siglufirði.

Map of iceland

Koma

Select date

Brottför

Select date

Gestir og Valkostir

2 gestir

AFMÆLISTILBOÐ

Sigló Hótel fagnar 10 ára afmæli í sumar!
Við viljum nýta þetta tækifæri til að þakka ykkur fyrir allar heimsóknirnar í gegnum árin. Þið hafið skapað ógleymanlegar minningar og einstaka stemningu hér á Sigló – og eigið risastóran stað í hjarta okkar.

Til að fagna þessum tímamótum viljum við bjóða ykkur sérstakt afmælistilboð í sumar:
Fáðu 50% afslátt af dvölinni þegar þú bókar tvær eða fleiri nætur út ágúst 2025!

Komdu og fagnaðu með okkur – við hlökkum til að taka á móti þér!

Hér getur þú bókað

Notaðu kóðan "SIGLO50" til þess að bóka.

Einstakur áfangastaður í 10 ár

Sigló Hótel opnaði formlega í júní 2015 og hefur síðan þá verið einstakur áfangastaður fyrir ferðalanga sem leita að kyrrð, fegurð og hlýjum viðtökum. Hótelið stendur við smábátahöfnina í hjarta Siglufjarðar og er hannað með það að markmiði að samræmast umhverfi sínu og sögulegu samhengi bæjarins.

Old pictures of siglo hotel

Upplifðu það besta sem Siglufjörður hefur upp á að bjóða

Á Siglufirði er allt innan seilingar – hvort sem þú vilt slaka á, borða vel eða prófa eitthvað nýtt.

Kíktu á Sunnu veitingastað í frábæran kvöldverð með fersku hráefni og útsýni yfir höfnina. Taktu svo bruggferð og smökkun á Segli 67, þar sem þú kynnist einstökum handverksbjór og heyrir sögurnar á bakvið hverja tegund.

Síldarminjasafnið tekur þig aftur í tímann – þar færðu innsýn í lífið á síldarárunum og gamla vinnubrögð sem mótuðu bæinn.

Fyrir ævintýragjarna er nóg að velja úr – prófaðu sjósund, skelltu þér í kajak á firðinum eða röltu meðfram sjónum og njóttu kyrrðarinnar.

Og svo er alltaf gott að enda daginn í heita pottinum við höfnina, með útsýni yfir fjöllin og hafið.

Sigló er staður til að njóta, kanna og slaka – í eigin takti.