Hótelin okkar

Keahotels er ein af stærstu hótel keðjum Íslands með hótel í Reykjavík, Akureyri, Vík, Grímsnesi og Siglufirði.

Map of iceland

Koma

Select date

Brottför

Select date

Gestir og Valkostir

2 gestir

Hægt er að velja dagsetningar neðar

Skíða­göngu­ævintýri og gisting á Sigló Hótel

Námskeiðið stendur í þrjá daga og er kennt af reynslumiklum skíðagöngukennurum og hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Síðustu ár hafa þessi námskeið selst upp fljótt.

Stútfullur pakki af notalegheitum: Innifalið er morgunverður, hádegismatur og kvöldverður, aðgangur að heitum pottum, après-ski og fleira. Allt sem þú þarft fyrir fullkomna upplifun í faðmi fjallana.

Skoðaðu dagskránna neðar á síðunni til að sjá allt sem er í boði.

Hægt er að velja dagsetningu hér fyrir neðan

Smelltu á dagsetningu til að bóka fyrir tvo í herbergi

Verð frá 159.900 kr. á mann mv tvo í herbergi

  • 19. - 21. febrúar 2027
  • 12. - 14. mars 2027
  • 19. - 21. mars 2027

Smelltu á dagsetningu til að bóka fyrir einn í herbergi

Verð frá 99.900 kr. í standard herbergi fyrir einn.

  • 19. - 21. febrúar 2027
  • 12. - 14. mars 2027
  • 19. - 21. mars 2027

Vinsamlega athugið að verðin á bókunarsíðunni eru miðað við hvert herbergi.
*Gistináttaskattur er ekki innifalinn í verðinum hér fyrir ofan.

Fyrirspurnir varðandi hópabókanir, vinsamlegast hafið samband við söluskrifstofuna okkar á netfangið bokanir@keahotels.is

Viljir þú lengja dvölina bjóðum við sértilboð á fimmtudags- og sunnudagsnótt. Vinsamlegast hafðu samband eftir að bókun er gerð, á siglo@keahotels.is eða í síma 461 7730

Gefðu ævintýri í jólapakkann

Langar þig að gefa einhverjum sérstökum skíðagönguævintýri í jólagjöf?

Við útbúum fallegt gjafabréf á rafrænu formi sem þú getur prentað út og sett í jólapakkann. Þú gengur fyrst frá bókun á eitt af námskeiðunum þremur hér að ofan og sendir okkur svo tölvupóst með bókunarnúmerinu á marketing@keahotels.is. Og við sendum þér gjafabréfið eins fljótt og auðið er.

Dagskráin

Föstudagur
  • Innritun eftir kl. 15:00
  • Fundur með þjálfurum seinnipartinn í fundarsal
  • Seinnipartsæfing
  • Þriggja rétta kvöldverður á Sunnu á Sigló Hótel
Laugardagur
  • Morgunverður
  • Skíðaæfing fyrir hádegi
  • Hádegisverður á Sunnu á Sigló Hóteli
  • Skíðaæfing eftir hádegi
  • Aprés ski á Sigló Hótel
  • Frjáls tími, pottar, sauna og kósýheit
  • Þriggja rétta kvöldverður á Sunnu á Sigló Hótel
Sunnudagur
  • Morgunverður
  • Skíðaæfing fyrir hádegi
  • Hádegisnesti og útritun af hóteli

*Birt með fyrirvara um breytingar.

Atriði sem þarf að hafa í huga

  • Þátttakendur þurfa að mæta með eigin búnað (gönguskíði, stafi, skó og fatnað)
  • Aðstaða til að geyma skíðin er hjá okkur, þau sem eru með áburðarskíði sjá sjálf um að bera á skíðin
  • Akstur er ekki innifalinn í tilboði
  • Sé áhugi á að leigja skíðabúnað bendum við á að hafa samband við skíðafélagið, hægt er að senda póst á skidafelagolf@gmail.com.
  • Gistináttaskattur er ekki innifalinn í verðinu og er rukkaður við komu.

Skilmálar

  • Full greiðsla er tekin af korti bak við bókun 15 dögum fyrir komu.
  • Bókun fæst ekki endurgreidd eftir greiðslu en hægt er að færa bókun án gjalda allt að 7 dögum fyrir komu, svo lengi sem laust er á umbeðinni dagsetningu.
  • Við endurgreiðum námskeiðið ef það fellur niður vegna veðurs.
  • Ekki er hægt að nota gjafabréf upp í skíðagöngupakkann.

Athugið, hópaskilmálar vegna hópa 15 manns eða fleiri geta átt við og fara í gegnum bokanir@keahotels.is

Ef skipta á greiðslunni á milli gesta, vinsamlegast hafið samband við hótelið eftir bókun.

Sigló with northern lights in background