Fundir og viðburðir á Hótel Grímsborgum
Á Hótel Grímsborgum fara fundir og viðburðir fram í notalegu og sveigjanlegu umhverfi. Viðburðarrýmin eru vel útbúin og henta jafnt fyrir ráðstefnur, fyrirtækjafundi, brúðkaup og önnur einkasamkvæmi, með fjölbreyttum uppsetningarmöguleikum fyrir hópa af öllum stærðum.
Hótel Grímsborgir býður upp á nútímalega aðstöðu og framúrskarandi veitingaþjónustu fyrir hvers kyns viðburði, með pláss fyrir allt að 180 sitjandi gesti, og tryggir þannig vel heppnaða og eftirminnilega viðburði.

Veitingasalur
Fullkominn staður fyrir árshátíðir og ógleymanleg brúðkaupsveislur.

Hliðarsalur
Hægt að nota sem stækkum fyrir veitingasalinn eða nýta fyrir smærri hópa.

Gallery Salur
Afmarkaður salur sem hentar vel fyrir fundi og ráðstefnur.
Veitingasalur
Aðalsalur Hótel Grímsborga er veitingasalurinn, ásamt viðbótarsal sem hægt er að nýta sér eða með veitingasalnum fyrir stærri hópa. Veitingasalurinn rúmar allt að 180 sitjandi gesti og er vinsæll kostur fyrir brúðkaupsveislur og árshátíðir. Í salnum er eyja sem hentar vel fyrir hlaðborð eða aðra veitingauppsetningu. Þar er einnig glæsilegur bar sem býður upp á fjölbreytt úrval vína, bjóra og kokteila, auk notalegs setusvæðis með arni til. Rýmið er bjart og rúmgott, með mikilli náttúrulegri birtu og er aðgengilegt frá aðalbyggingunni.
Við hliðiná veitingasalnum er annað rými sem býður upp á aukinn sveigjanleika hægt er að nota hann sem viðbót við veitingasalinn eða sem sjálfstætt rými. Einnig er mögulegt að skipta honum í tvö minni rými eða nota hann sem einn stærri sal.
Þannig henta salirnir vel fyrir kynningar, vinnustofur, brúðkaup og fjölbreyttar samkomur. Með sveigjanlegu skipulagi, frammúrskarandi þjónustu og rólegu sveitaumhverfi er auðvelt að sníða aðstöðuna að mismunandi þörfum viðburða.
Gallery Salurinn
Gallery salurinn er staðsettur í sér byggingu sem býður upp á ennþá meira næði. Rýmið einkennist af stórum gluggum og fallegu útsýni yfir náttúruna. Vönduð aðstaða með pláss fyrir allt að 60 manns og hentar því vel fyrir fundi, ráðstefnur og smærri viðburði.
Í sama húsi eru 10 Gallery svítur, sem gerir staðinn afar hentugan fyrir smærri hópa sem vilja sameina fundahald eða einkaviðburð og gistingu í einu og sama rýminu.
Viltu halda hópnum saman?
Hótel Grímsborgir bjóða upp á þrjá mismunandi valkosti sem eru fullkomnir fyrir hópa. Allir fá sitt eigið herbergi og baðherbergi, en húsin bjóða jafnframt upp á sameiginleg rými þar sem hópurinn getur notið samveru og slakað á saman.

Superior Húsin
3 notaleg hús með átta herbergjum hvert, sameiginlegri setustofu og tveimur heitum pottum.

Gallery Svítur
10 Gallery svítur í sama húsi og Gallery salurinn, hvert með sinn einkapott.

Deluxe Húsin
5 Deluxe Hús, hvert með fimm herbergjum, sameiginlegri setustofu, ásamt heitum potti.
Viltu frekari upplýsingar?
Hér getur þú kynnt þér bæklinginn okkar og fengið nánari upplýsingar um allt sem Hótel Grímsborgir hefur upp á að bjóða.
Fyrir fyrirspurnir eða til að óska eftir sérsniðnu tilboði fyrir hóp eða viðburð, vinsamlegast hafðu samband við okkur á sales@keahotels.is.

